Íslandsstofa
Íslandsstofa var stofnuð í apríl 2010 og tók formlega til starfa 1. júlí sama ár. Stofan tók við verkefnum Útflutningsráðs og Fjárfestingastofu, auk erlends markaðsstarfs Ferðamálastofu. Íslandsstofa veitir íslenskum fyrirtækjum aðstoð við kynningu og sölu á vörum, þjónustu og þekkingu erlendis. Íslandsstofa rekur í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð og Rannís „Enterprise Europe Network" sem er stuðningsnet Evrópusambandsins fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Fjárfestingarstofan „Invest in Iceland Agency" hefur það hlutverk að laða til landsins erlenda fjárfesta, miðla upplýsingum til erlendra fjárfesta og koma þeim í samband við viðeigandi aðila á Íslandi, hafa frumkvæði að samkeppnisgreiningu einstakra atvinnugreina, fylgjast með rannsóknum, þróun og nýjum tækifærum og veita stjórnvöldum og atvinnulífi ráðgjöf. Íslandsstofa er aðili að ÚTÓN (Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar) sem er samstarfsverkefni Samtóns, mennta- og menningarmálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og iðnaðarráðuneytis.
Ferðamálasvið Íslandsstofu sinnir markaðsstarfi erlendis, svo sem samskiptum við söluaðila, gerð landkynningarefnis, upplýsingagjöf og umsjón með þátttöku í ferðasýningum og öðrum viðburðum tengdum ferðaþjónustu.








