Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Menningarsamningar

Menningarsamningar ríkis og sveitarfélaga eru nú í gildi í hverjum landshluta nema á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur samninganna er að efla menningarstarf á viðkomandi landsvæði og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga við slíkt starf í einn farveg. Enn fremur er tilgangurinn með þeim að auka áhrif sveitarfélaga á forgangsröðun verkefna. Ríki og sveitarfélög leggja framlög til samninganna og einkaaðilar í sumum tilfellum. Umsjón með úthlutun styrkveitinga hafa menningaráð á hverju svæði og veita þau ráðgjöf til umsækjenda.

Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk