Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Nýsköpunarmiðstöð

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur það hlutverk að hvetja til nýsköpunar og efla framgang nýrra hugmynda í íslensku atvinnulífi í þeim tilgangi að auka fjölbreytni íslensks atvinnulífs og efla samkeppnisstöðu þess. Kjarnastarfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar skiptist í tvö svið, annars vegar Impru á Nýsköpunarmiðstöð, sem er stuðningsþjónusta og þekkingarmiðlun fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki, og hins vegar íslenskar tæknirannsóknir, þar sem stundaðar eru hagnýtar rannsóknir og tækniráðgjöf.

Nýsköpunarmiðstöð er með aðalstöðvar í Reykjavík og starfsstöðvar víða um land þar sem boðið er upp á ráðgjöf og handleiðslu. Starfsstöðvar eru á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík, Egilsstöðum, í Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði. Miðstöðin veitir ýmsa styrki til nýsköpunarverkefna og má þar nefna átak til atvinnusköpunar, frumkvöðlastuðning, framtak, skrefi framar og klasa og krásir. Vaxtarsprotar er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins sem hefur það markmið að hvetja til fjölbreyttrar atvinnusköpunar í sveitum.

Starfsorka er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Vinnumála-stofnunar og hefur það markmið að auðvelda nýsköpunarfyrirtækjum að ráða starfsfólk. Enn fremur má nefna FabLab-stöðvar en ein slík er í Vestmannaeyjum og ráðgert er að opna aðra slíka á Sauðárkróki haustið 2010. FabLab stendur fyrir Fabrication laboratory og er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að útbúa nánast hvað sem er. Á slíkar vinnustofur er mögulegt að koma og vinna frumgerðir ýmissa vara í þeim tilgangi að hrinda hugmyndum í framkvæmd.

Heimasíða Nýsköpunarmiðstöðvarinna er www.nmi.is


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk