Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) veitir stuðning við rannsóknir, rannsóknatengt nám, tækniþróun og nýsköpun. Stofnunin er náinn samstarfsaðili Vísinda- og tækniráðs og hefur það hlutverk að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu ráðsins. Rannís aðstoðar vísinda- og tæknisamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum auk þess að kynna áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag. Ýmsir rannsóknastyrkir eru í boði og er það rannsókna- og nýsköpunarsvið miðstöðvarinnar sem hefur yfirumsjón með þeim.








