Brautargengi
Námskeiðin sem eru á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands hafa verið haldin síðan árið 1996 bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Á námskeiðunum vinna konur með viðskiptahugmyndir sínar og fullgera viðskiptaáætlun. Meðal efnis á námskeiðunum er markviss uppbygging þátttakenda, stefnumótun, stjórnun og starfsmannamál, markaðsmál, fjármál, tölvuvæðing og Netið ásamt hagnýtum atriðum við stofnun og rekstur fyrirtækis. Nýlega var boðið upp á framhaldsnámskeið í brautargengi þar sem farið er dýpra í ýmsa þætti, svo sem markaðsfræði og fjármál. Einnig er kennt um vörumerki, þjónustustjórnun, netviðskipti, ímynd og samskipti við auglýsingastofur og hönnuði. Um 800 konur hvaðanæva af landinu hafa lokið brautargengisnámskeiðum.








