Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Máttur kvenna

Háskólinn á Bifröst býður upp á rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur sem hafa áhuga á að bæta rekstrarþekkingu sína. Máttur kvenna I er 11 vikna námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Kennsla fer fram í fjarnámi og lýkur með vinnuhelgi og formlegri útskrift. Í náminu er meðal annars farið í bókhald, upplýsingatækni, markaðs- og sölumál, fjármál og áætlanagerð.

Máttur kvenna II er framhaldsnámskeið þar sem farið er dýpra í námsefnið. Í náminu er farið í bókhald, viðskiptaensku, skattamál, rekstrarhagfræði, samningatækni og mannauðsstjórnun.


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk