Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Vaxtarsamningar

Vaxtarsamningar eru ein helsta burðarstoð atvinnuþróunar og nýsköpunar á landsbyggðinni og veigamikill þáttur í framkvæmd byggðaáætlunar 2010-2013. Í samningunum er ábyrgð og framkvæmd færð út í landshlutana og stefnumótun heimamanna og mat þeirra byggist á styrkleikum og sérkennum hvers svæðis. Við framkvæmd vaxtarsamninga hefur verið lögð áhersla á aðferðafræði klasa. Mikilvægt er að það klasasamstarf sem stofnað hefur verið til verði sem mest sjálfbært svo svigrúm sé til þess að halda áfram að styðja og þróa nýja klasa auk þess að leggja aukna áherslu á rannsóknir og nýsköpun, meðal annars í gegnum þekkingarsetur. Mið er tekið af vinnu við gerð heildstæðrar sóknaráætlunar fyrir alla landshluta og skipting samninganna að nokkru samræmd svæðaskiptingu áætlunarinnar.

Vaxtarsamningar hafa verið gerðir við átta svæði í landsbyggðarkjördæmunum þremur og fara atvinnuþróunarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga með framkvæmd samninganna á hverju svæði. Í sumum landshlutum eru samningar í umsjón atvinnuþróunarfélaga en annars staðar eru samningar við landshlutasamtök. Ráðgjöf og stuðningur við verkefnin er í boði viðkomandi atvinnuþróunarfélaga.


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk