Hugmyndaráðuneytið
Hugmyndaráðuneytið er grasrótar- og samfélagsverkefni sem byggist á sjálfboðavinnu. Auk öflugs vettvangs á Netinu stendur það fyrir reglulegum hópfundum þar sem frumkvöðlar, hugsuðir og fagmenn frá ólíkum sviðum atvinnulífsins, háskólunum og stjórnsýslunni hittast og skiptast á hugmyndum, reynslusögum, hlusta á fyrirlestra, mynda tengsl og veita hvert öðru stuðning til framkvæmda.








