Innovit
Innovit er nýsköpunar og frumkvöðlasetur sem stofnað var af háskólanemum árið 2007. Það er einkarekið fyrir fólk með góðar viðskiptahugmyndir þar sem lögð er megináhersla á viðskiptatækifæri sem spretta úr starfi íslenskra háskóla. Megintilgangur Innovit er að virkja frumkvæði og athafnasemi ungs fólks á Íslandi og aðstoða það við að hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd með stofnun fyrirtækja að leiðarljósi. Þar fá háskólanemar og nýbrautskráðir einstaklingar faglega ráðgjöf og aðstöðu til að stofna ný fyrirtæki. Innovit stendur fyrir frumkvöðlakeppninni Gulleggið sem er veitt einu sinni á ári.








