Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Toppstöðin

Toppstöðin er frumkvöðlasetur sem rekið er af áhugasamtökunum Toppstöðinni í gömlu varaaflsstöðinni í Elliðarárdal. Þar hafa um 20 frumkvöðlar á sviði vöruhönnunar og vöruframleiðslu aðsetur sitt og vinna að fjölbreyttum nýsköpunarverkefnum. Innan stöðvarinnar er málmsmíðaverkstæði sem ætlað er að smíða og þróa frumgerðir.

Toppstöðin er enn fremur hugsuð sem stuðningsnet fyrir sprotafyrirtæki á sviði vöruframleiðslu og er markmiðið að stuðla að aukinni samvinnu hönnunar- og iðngreina með það fyrir augum að auka vöruframleiðslu innanlands.
Auk þess vinnur stöðin að vitundarvakningu og fræðslu um mikilvægi hönnunar- og iðngreina í íslensku samfélagi. Haldnir eru fyrirlestrar og sýningar í samvinnu við Reykjavíkurborg, menntastofnanir, frumkvöðlasetur og fyrirtæki.


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk