Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands er hægt að sækja um ýmiskonar stuðning við frumkvöðlastarfsemi.

Átak til atvinnusköpunar

Markmið verkefnisins

  • Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
  • Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum.

Getur styrkupphæð numið allt að helmingi fjármögnunar verkefnis. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga.
Auglýst er eftir umsóknum vor og haust.

Nánari upplýsingar má finna hér

Framtak

Hér er um að ræða styrki fyrir starfandi fyrirtæki á landsbyggðinni sem hafa hug á því að þróa vöru eða þjónustu innanlands sem utan. Styrkupphæð getur numið allt að þremur milljónum króna auk faglegs stuðnings. Stuðiningur er ekki veittur til fjárfestinga í tækjum, aðstöðu eða búnaði. Verkefni er alltaf opið til umsóknar og er umsóknarfrestur 15.hvers mánaðar.

Nánari upplýsingar má finna hér

Skrefi framar

Um er að ræða styrk til ráðgjafar vegna verkefna fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni sem hafa starfað í tvö ár og velta a.m.k. 10 milljónum króna á ári.  Verkefni er alltaf opið til umsóknar og þurfa þær að berast fyrir 15da hvers mánaðar.

Nánari upplýsingar má finna hér

Frumkvöðlastuðningur

Hér er um að ræða stuðning við nýsköpun einstaklinga og smærri fyrirtækja á landsbyggðinni og getur styrkupphæð numið alls kr. 600.000. Eingöngu er hægt að sækja um styrk til verkefna á landsbyggðinni.  Verkefni er alltaf laust til umsóknar og þarf að skila umsóknum fyrir 15da hvers mánaðari.

Nánari upplýsingar má finna hér.


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk