Nýsköpunarstyrkir Landsbankans
Markmið nýsköpunarstyrkja Landsbankans er að gefa frumkvöðlum tækifæri til að þróa nýja viðskiptahugmynd, eldri viðskiptahugmynd á nýju markaðssvæði eða nýja vöru eða þjónustu. Nýsköpunarstyrkjum er jafnframt ætlað að styðja við frumkvöðla til kaupa á efni, tækjum eða sérfræðiþjónustu vegna nýsköpunar eða sækja námskeið sem sannanlega byggir upp færni sem nýtist við þróun viðskiptahugmyndar.
Árlega verða veittir nýsköpunarstyrkir, samtals að fjárhæð 15.000.000 kr. Auglýst verður eftir umsóknum.
Sjá nánar hér






