Beint á leiðarkerfi vefsins
Atvinnumál kvenna

Kvennaslóðir

http://www.kvennaslodir/ .is er gagnabanki með upplýsingum um kvensérfræðinga á ýmsum sviðum en markmið hans er að gera þekkingu og hæfni kvenna sýnilega og aðgengilega. Kvennaslóðir eru hugsaðar sem vettvangur fyrir fjölmiðla, fyrirtæki og stjórnvöld til þess að finna hæfar konur til margvíslegra starfa með skjótvirkum hætti. Á Kvennaslóðum má finna nöfn kvenna sem eru tilbúnar að leggja sitt af mörkum í samfélaginu, t.d. með því að veita sérfræðiálit í fjölmiðlum og sitja í stjórnum og ráðum og nefndum á vegum hins opinbera og í einkageiranum.

Ef þú hefur áhuga á því að taka þátt í opinberri umræðu og ákvarðanatöku með því að koma fram í fjölmiðlum eða með setu í stjórnum fyrirtækja og í opinberum nefndum þá átt þú erindi á Kvennaslóðir.

Ef þú ert nú þegar skráð þar inn biðjum við þig um að kíkja á skráningu þína og uppfæra upplýsingar ef þess er þörf. Ef þú ert búin að gleyma lykiliorðinu þá sendu tölvupóst á kvennaslodir@kvennaslodir.is og þú færð sent nýtt lykilorð hið fyrsta.

Að lokum er hér ábending frá blaðakonu sem oft notar http://www.kvennaslodir.is/ til að finna viðmælendur: Vinsamlegast gefðu upp símanúmer sem hægt er að ná í þig á kvöldin og um helgar en ekki bara vinnusíma.


Stækka og minnka texta

Auðlestrarhamur Stækka letur Minnka letur

English information

Information in english

Danish information

Information pa dansk